06 júní 2008

Grænn föstudagur GENgisins


Hver vann reiðhjólakeppnina?

Sigurlið reiðhjólakeppninnar verður tilkynnt í hádeginu á föstudaginn, 6. júní, klukkan 12:30

Að loknum vinnudegi verður haldið upp á hversu dugleg hjólaliðin eru búin að vera.
Starfsmenn eru hvattir til að ferðast til og frá vinnu á umhverfisvænan hátt. Þetta má gera með því að ganga, hjóla, taka strætó eða fara í samfloti til og frá vinnu.
Eins og venjulega verður seldur grænn bjór á 200 kr. í matsalnum.

Vonumst til að sjá sem flesta!
Stjórnin

28 apríl 2008

Golfkennsla

Nú fer að hefjast golf kennsla hjá okkur í Básum. Enn er pláss fyrir fleiri þátttákendur. Vinsamlegast hafið samband við Boggu.

23 apríl 2008

Sumargleði 30.apríl 2008

Við minnum á snilldar sumargleði GENgisins sem enginn má missa af !! Ef makar verða með í för skráið þá þá líka á listann. Skráningu lýkur á föstudaginn.

16 apríl 2008

Sumargleði 30.apríl 2008

Þann 30. apríl ætlar GENgið að fagna sumrinu. Við ætlum að hittast á Hressingarskálanum í Austurstræti klukkan 20.00 og fá okkur hamborgara og bjór í boði GENgisins. Makar og þeir sem eru ekki GENgismeðlimir velkomnir gegn vægu gjaldi. Nákvæmt verð kemur í ljós síðar. Skráning er hafin og henni lýkur miðvikudaginn 23. apríl og hanga listar upp í matsal og á hurðinni inní MAS. Þeir sem geta ekki skráð sig þar geta sent okkur tölvupóst.



15 apríl 2008

FERÐASJÓÐUR

Starfsmannafélagið GENgið heldur utanum ferðasjóð sem nokkrir starfsmenn greiða í. Dregnar eru 2.500 krónur á mánuði af þeim. Ekki er búið að ákveða neina ferð á vegum starfsmannafélagsins, en hafi einhver áhuga á að taka þátt er hann vinsamlegast beðinn að hafa samband við Claudíu.

14 apríl 2008

Hjólað í vinnuna 2008

Átakið Hjólað í vinnuna hefst miðvikudaginn 7. maí 2008 og stendur til þriðjudagsins 27. maí eða í 3 vikur. GENgið hvetur alla til þess að merkja við þessar dagsetningar á dagatalið hjá sér.

Að þessu sinni verður skipt í lið innan fyrirtækisins eftir styrkleika og fær sigurliðið verðlaun. Einnig verður einstaklingskeppni og þar eru einnig vegleg verðlaun í boði.

Við munum skrá okkur sem Roche NimbleGen að þessu sinni í stað GENgisins. Í fyrra vorum við í 37. sæti og markmiðið er að gera mun betur en það.

Heimasíða hjólað í vinnuna

10 apríl 2008

Gosdrykkir í sjoppunni

Á stjórnarfundi 10.apríl, 2008 var ákveðið að hækka gjald á gosdrykkjum í sölu á vegum GENgisins í Kr 120. Eru fyrir þessu tvær ástæður. Sú fyrsta er að verð á gosi í Bónus hefur hækkað. Hin ástæðan er sú að þeð eru alltaf nokkrar flöskur sem eru ekki skráðar á starfsmenn í hverjum mánuði. Er af þeirri ástæðu alltaf einhver rýrnun á birgðum.

Ákveðið var að gjald fyrir drykki á Grænum föstudögum verði óbreytt um sinn.

08 apríl 2008

Myndir frá grænu spilakvöldi

Grænt spilakvöld GENgisins var vel heppnað. Spilað var Actionary og svo var pizza í boði. Til hliðar á síðunni er linkur á myndir frá spilakvöldinu.

07 apríl 2008

Myndir af Árshátíð 2008

Nú eru komnar inn myndir af Árshátíð GENgisins/Roche NimbleGen 2008. Jökull safnaði saman myndum frá starfsmönnum og setti þær á netið. Það eru tenglar á myndirnar hér til hliðar á síðunni.

GENgið þakkar árshátíðarnefndinni fyrir vel unnin störf. Í árshátíðarnefnd árið 2008 voru:
Eva, Sigga Stína, Bragi, Jökull og Lalli.

06 apríl 2008

Golf í sumar

Nú fer golf-vertíðin að hefjast og ekki seinna en vænna að fara að undirbúa sig fyrir spilamennskuna í sumar.

Til stendur að vera með kennslu í Básum eins undanfarin ár. Áhugasamir eru beðnir að hafa samband við Boggu.

Ef þú villt spila svona…

en ekki svona…

þá hvetjum við þig til að taka þátt.

Stefnt er að því að ljúka vertíðinni með uppskeruhátíð í haust. Allir eru velkomnir, hvort sem þeir hafa verið með í kennslunni eða ekki.