22 október 2005

Jólahlaðborð

Næst á dagskrá á vegum GENgisins er hið árlega jólahlaðborð. Ákveðið var að skella sér bara nógu snemma eða í lok nóvember. Þannig ætti fólk ekki að vera komið í jólastressið og við getum vonandi notið kvöldsins sem allra best. Jólahlaðborðið verður í Leikhúskjallaranum og verður leikin tónlist á meðan borðhaldi stendur en að loknu borðhaldi verður dansað við tóna ABBA, Burt Bacharach (hvernig sem það er nú skrifað) og fleiri mætra manna og hljómsveita.

Fullt verð (makar og ófélagar): 5400kr
Verð félagsmanna: 1500kr
Verð semi-félagsmanna (þeirra sem hafa borgað skemur en 3 mán í félagið): 3000kr

Skráning fer fram til 1.nóvember
Sjáumst sem flest

GENgisstjórnin