Níu starfsmenn mættu á hjóli í vinnuna í dag þrátt fyrir lítilháttar rigningu í morgun. Við stöndum okkur vel í kílómetra keppninni og erum í 2. sæti í fjölda km/starfmann. Hins vegar vantar aðeins upp á þátttökuna og erum við í 9. sæti í okkar flokki.
Nú er bara að koma gamla hjólinu í lag eða kaupa nýtt!
02 maí 2007
01 maí 2007
Hjólað í vinnuna

Á morgun hefst átakið "Hjólað í vinnuna". Að sjálfsögðu tekur GENgið þátt og sameinast þar NimbleGen, Lindgen og Wicell í þessu átaki. Sextán hafa skráð sig og vonandi munu fleiri bætast við á meðan á keppninni stendur. Listi yfir þátttakendur, kílómetra, þátttökudaga og fararmáta er að finna á veggnum í stiganum á leið í mötuneytið. Skráið endilega nafn ykkar á blaðið ef þið viljið taka þátt. Skipt hefur verið í tvö lið, Lið A og Lið B. A-liðið er samansett af afreksfólki sem ætlar að reyna að taka þátt sem flesta daga en B-liðið er fyrir þá sem vilja fara rólega af stað.
Keppt er um:
1. Flesta þátttökudaga, hlutfallslega m.v. fjölda starfsmanna í fyrirtækinu (36).
2. Flesta kílómetra, hlutfallslega m.v. fjölda starfsmanna í fyrirtækinu (36).
2. Flesta kílómetra, hlutfallslega m.v. fjölda starfsmanna í fyrirtækinu (36).
Því er best að reyna að ná sem flestu samstarfsfólki með, sem oftast.
Árshátíð 2007
Árshátíð GENgisins var haldin þann 14. apríl 2007. Umgjörð árshátíðarinnar var Hollywood og var upphitun fyrir árshátíð í þeim anda. Kvikmyndagetraun og val um besta tvífarann fór fram og voru þrír jafnir í kvikmyndagetraun og voru úrslit ráðin í bráðabana. Gunnur, Jakob og Snorri áttust við í úrslitum og bar Gunnur sigur úr bítum. Ómar "Hanson" vann keppnina um besta tvífarann. Til að efla liðsandann fyrir árshátíð var farið í Hópefli hjá Íþrótta Akademíunni í Egilshöll. Keppnisskapið var það mikið að nokkrir slösuðust þó enginn alvarlega. Árshátíðin var haldin í Félagsheimili Seltjarnarness og þótti vel heppnuð. Sjá má myndir úr hópefli hér og myndir frá árshátíðinni hér (Jökull) og hér (Ingibjörg).
20 ágúst 2006
Enn ný myndasíða
Búið að setja upp myndasíðu sem er auðveldari í notkun en fotki...og fyllist ekki eins hratt.
slóðin er http://www.gengid.myphotoalbum.com
Ef einhverjir eru með GENgis myndir þá er bara að hafa sambandi og fá lykilorðið :)
slóðin er http://www.gengid.myphotoalbum.com
Ef einhverjir eru með GENgis myndir þá er bara að hafa sambandi og fá lykilorðið :)
22 júní 2006
Ný myndasíða
Fyrir þá örfáu hræður sem kíkja af og til inn á þessa síðu þá ber þess að geta að ný myndasíða hefur verið opnuð (því hin var full) og er linkurinn þangað:
public.fotki.com/gengid2
nýjustu myndirnar eru frá Úlfarsfellsgöngu og Langjökulssumarsólstöðuferð
public.fotki.com/gengid2
nýjustu myndirnar eru frá Úlfarsfellsgöngu og Langjökulssumarsólstöðuferð
02 mars 2006
Öskudagsfjör á Vínlandsleið

Tólf GENgisfélagar mættu í búning á Öskudag. Flóran var skrautleg; tveir skrattar, kúreki, belja, prinsessa, geisha, Bollywood stjarna, Sami, skáti, Karate Kid, rasta-töffari og kattarkonan! Kosið var um frumlegasta búninginn og flottasta búninginn. Lárus, öðru nafni Búkolla, vann frumleikaverðlaunin, en Kristín Anna Bollywoodstjarna vann flottheitaverðlaunin.
Sjá myndir; http://public.fotki.com/gengid.
31 janúar 2006
16 janúar 2006
NimbleStelpa
Erla Hrönn eignaðist dóttur klukkan 12.31 í dag. Stelpan var 2975g og 48 cm og hefur þegar fengið nafnið Sara Líf.
Erla biður kærlega að heilsa öllum
11 janúar 2006
Árshátíðarnefnd
Stjórn GENgisins hefur skipað Árshátíðarnefnd ársins 2006 og fyrir valinu urðu:
Birna
Gummi
Ingibjörg
Karen
Lárus
Svo er um að gera að fara að undirbúa skemmtiatriðin. Nýtt fólk hlýtur að vera með nýjar hugmyndir enda Elsa sú eina sem er á staðnum úr skemmtinefnd Nimblunga síðustu 2ja ára. Spurning um að gefa henni frí í ár....???
Birna
Gummi
Ingibjörg
Karen
Lárus
Svo er um að gera að fara að undirbúa skemmtiatriðin. Nýtt fólk hlýtur að vera með nýjar hugmyndir enda Elsa sú eina sem er á staðnum úr skemmtinefnd Nimblunga síðustu 2ja ára. Spurning um að gefa henni frí í ár....???
01 janúar 2006
Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)
