16 janúar 2006

NimbleStelpa


Erla Hrönn eignaðist dóttur klukkan 12.31 í dag. Stelpan var 2975g og 48 cm og hefur þegar fengið nafnið Sara Líf.

Erla biður kærlega að heilsa öllum




11 janúar 2006

Árshátíðarnefnd

Stjórn GENgisins hefur skipað Árshátíðarnefnd ársins 2006 og fyrir valinu urðu:

Birna
Gummi
Ingibjörg
Karen
Lárus

Svo er um að gera að fara að undirbúa skemmtiatriðin. Nýtt fólk hlýtur að vera með nýjar hugmyndir enda Elsa sú eina sem er á staðnum úr skemmtinefnd Nimblunga síðustu 2ja ára. Spurning um að gefa henni frí í ár....???



01 janúar 2006

Gleðilegt ár!!

30 desember 2005

Fleiri myndir

Eirný er búin að bæta við fleiri myndum á myndasíðuna

gengismyndir

19 desember 2005

Myndir

Myndir frá jólaballinu má finna hér.
Fleiri myndir eiga eftir að bætast í safnið

13 desember 2005


JÓLABALL

Á sunnudaginn kemur kl.10-12.
Sveinki mætir með góðgæti í poka
Dansað í kringum jólatréð
Piparkökur og mjólk
Föndur

Allir að mæta með sín eigin börn, barnabörn, frænkur, frænda eða fá lánuð.

24 nóvember 2005

Jólahlaðborð - enn og aftur

Jæja þá er bara að koma að þessu!

Jólahlaðborð á laugardaginn!!!

Dagskráin í Leikhúskjallaranum hefst kl. 19:30 með fordrykk, þar sem Örn Árnason tekur á móti mannskapnum með gamanmáli og söng.

EN áður en við höldum í Leikhúskjallarann ætlar Bogga að bjóða okkur í for-fordrykk :)
Mæting þar er kl 18:00 þar sem við fáum eitthvað spennandi í glas og sameinumst svo í leigubíla niðrí bæ.

Þó svo að ólíklegt að aðrir en GENgisfólk lesi þessa síðu þá ætla ég nú ekki að skrá heimilisfang Boggu þ.a. kíkið á meilinn ykkar til að fá það.

Hlökkum til að sjá ykkur
Stjórnin


17 nóvember 2005

Kominn tími til að borga

BORGA BORGA BORGA BORGA!!!!!

Þá er komið að því að borga jólahlaðborðið.
Sem fyrr segir er verðið:

1500 kr. fyrir félaga í GENginu (búnir að borga félagsgjöld í >3mán)

3000 kr. fyrir nýja félaga í GENginu

5400 kr. fyrir aðra

Vinsamlega leggið inn á reikning:
0111-05-274767 kt. 511005-1670
í síðasta lagi þriðjudaginn 22. nóv.

Sendið einnig tilkynningu um borgun á netfangið: karenjenny@wicell.org

Með jólakveðju
Stjórn GENgisins


22 október 2005

Jólahlaðborð

Næst á dagskrá á vegum GENgisins er hið árlega jólahlaðborð. Ákveðið var að skella sér bara nógu snemma eða í lok nóvember. Þannig ætti fólk ekki að vera komið í jólastressið og við getum vonandi notið kvöldsins sem allra best. Jólahlaðborðið verður í Leikhúskjallaranum og verður leikin tónlist á meðan borðhaldi stendur en að loknu borðhaldi verður dansað við tóna ABBA, Burt Bacharach (hvernig sem það er nú skrifað) og fleiri mætra manna og hljómsveita.

Fullt verð (makar og ófélagar): 5400kr
Verð félagsmanna: 1500kr
Verð semi-félagsmanna (þeirra sem hafa borgað skemur en 3 mán í félagið): 3000kr

Skráning fer fram til 1.nóvember
Sjáumst sem flest

GENgisstjórnin